Skip Navigation

Alvotech birtir skýrslu um þróun jafnréttismála á árinu 2022

Business
15 May 2023
  • Hlutfall karla og kvenna í starfsliði Alvotech er nú jafnt og óútskýrður kynbundinn launamunur dróst saman úr 5,2% í desember 2020 í 1,6% í desember 2022
  • Jafnréttisstefna Alvotech fylgir íslenskri löggjöf en gildir fyrir starfsfólk fyrirtækisins um allan heim óháð búsetu

Alvotech (NASDAQ: ALVO) gaf í dag út skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála hjá fyrirtækinu, með gögnum yfir árið 2022.  Þetta er önnur jafnréttisskýrsla Alvotech.

Framúrskarandi fyrirtæki taka mið af hæfileikum og framlagi starfsfólks við ráðningar og launaákvarðanir, en láta kyn einstaklinga og önnur óviðkomandi atriði ekki hafa áhrif á niðurstöðuna. Jafnfrétti og virðing fyrir fjölbreytileika eru meðal grunngilda Alvotech og stuðla að betri rekstri. 

Róbert Wessman

Forstjóri og stjórnarformaður

Alvotech hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu í fyrsta sinn árið 2021 og önnur endurskoðun af óháðum aðila fór fram í febrúar 2022. Jafnréttisstefna Alvotech er byggð á íslenskum lögum, en nær til allra starfsstöðva fyrirtækisins og starfsmanna þess, óháð búsetu.

Í lok síðasta árs hafði óútskýrður launamunur kynjanna minnkað úr 5,2% í 1,6% fyrir starfsfólk félagsins í heild og í 1% fyrir þá sem störfuðu á Íslandi. Á árinu 2022 voru 53% nýráðninga konur og 51% þeirra sem fengu stöðuhækkun eða framgöngu í starfi voru karlar.

Um síðustu áramót var starfsfólk Alvotech í heild frá 63 mismunandi löndum og starfsliðið innanlands frá 57 löndum auk Íslands. Tæpur helmingur starfsliðsins innanlands var þá af erlendu bergi brotinn.

Skýrslan um þróun jafnréttismála er hluti af verkefnum Alvotech á sviði samfélagslegrar ábyrgðar og sjálfbærni. Hana má finna á heimasíðu Alvotech auk annarra upplýsinga um sjálfbærni, stjórnarhætti og umhverfismál: https://www.alvotech.com/corporate-sustainability.