Skip Navigation

Alvotech gengur til samstarfs við Dr. Reddy‘s um markaðssetningu AVT03, hliðstæðu við Prolia og Xgeva, í Bandaríkjunum og Evrópu

Business
21 May 2024

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði gert samstarfssamning við Dr. Reddy’s Laboratories SA, dótturfyrirtæki Dr. Reddy’s Laboratories Ltd. (“Dr. Reddy’s”) um sölu- og markaðssetningu AVT03, líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Prolia og Xgeva, sem bæði innnihalda denosumab. Dr. Reddy er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar á Indlandi en starfsemi um allan heim. 

Prolia og Xgeva eru líftæknilyf við ýmsum þrálátum sjúkdómum sem tengjast  beinum, þar með talið beinþynningu kvenna eftir tíðahvörf og er notað til að fyrirbyggja einkenni frá beinum hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum.

Alvotech þróar og mun framleiða lyfið, en Dr. Reddy‘s mun sjá um skráningu og markaðssetningu. Samningurinn gerir ráð fyrir fyrirframgreiðslu til Alvotech og árangurstengdum greiðslum til félagsins við helstu áfanga í lyfjaþróun og markaðssetningu, auk hlutdeildar í tekjum. Dr. Reddy‘s mun hafa einkarétt til að selja lyfið í Bandaríkjunum en fer með sameiginlegan rétt til markaðssetningar í Bretlandi og öðrum ríkjum Evrópu.

Það er okkur ánægja að ganga til samstarfs við Alvotech til að veita sjúklingum í Bandaríkjunum, Bretlandi og öðrum ríkjum Evrópu aðgang að hágæða líftæknilyfjahliðstæðu. Á síðustu árum höfum við byggt upp úrval líftæknilyfjahliðstæða, nú síðast má nefna bevacizumab sem er fyrsta hliðstæðan sem við markaðssetjum í Bretlandi. Samstarf okkar við Alvotech gerir okkur kleift að auka úrval okkar af líftæknilyfjahliðstæðum og hefja frekari markaðssókn. Við munum virkja sterkt sölunet félagsins á þessum mörkuðum til þess að tryggja sjúklingum aðgengi að bestu meðferðarúrræðunum með minni tilkostnaði.

Erez Israeli

Forstjóri Dr. Reddy's

Við kynnum með ánægju nýjan samstarfsaðila sem mun gera okkur kleift að auka enn frekar framboð af hagstæðum líftæknilyfjum á alþjóðlegum mörkuðum. Sameiginlegt markmið okkar og Dr. Reddy‘s er að tryggja að sjúklingar hafi aðgengi að bestu meðferð og að draga úr kostnaði við heilbrigðisþjónustu.

Róbert Wessman

Stjórnarformaður og forstjóri Alvotech

Dr. Reddy’s er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki, stofnað árið 1984, með höfuðstöðvar í Hyderabad á Indlandi, sem markaðsetur frumlyf, samheitalyf og líftæknilyfjahliðstæður. Félagið starfar á mörkuðum í Bandaríkjunum, Indlandi, Kína, Brasilíu, Evrópu og Asíu. Líftæknilyfjadeild Dr. Reddy’s vinnur að þróun, framleiðslu og markaðssetningu líftæknilyfjahliðstæða við ónæmissjúkdómum og krabbameini. Félagið markaðssetur nú sex líftæknilyfjahliðstæður alþjóðlega.

AVT03 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Prolia og Xgeva, tvö líftæknilyf sem innihalda denosumab í mismunandi lyfjaformi. Prolia er líftæknilyf til meðferðar við beinþynningu eftir tíðahvörf hjá konum og við beintapi hjá körlum og konum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum [1]. Xgeva er gefið til að fyrirbyggja einkenni frá beinum, svo sem sjúkleg beinbrot hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum [2]. Það er einnig gefið til meðferðar við risafrumuæxli í beinum. Í janúar sl. tilkynnti Alvotech jákvæðar niðurstöður úr klínískri rannsókn þar sem borin voru saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleiki AVT03 og Prolia í heilbrigðum einstaklingum. Klínísk rannsókn á sjúklingum þar sem borin er saman virkni og öryggi AVT03 og Prolia stendur nú yfir, og jafnframt önnur rannsókn á lyfjahvörfum þar sem borin eru saman AVT03 og Xgeva í heilbrigðum einstaklingum.  AVT03 er líftæknilyfjahliðstæða í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

[1] https://www.ema.europa.eu/is/documents/product-information/prolia-epar-product-information_is.pdf

[2] https://www.ema.europa.eu/is/documents/product-information/xgeva-epar-product-information_is.pdf