Skip Navigation

Alvotech hefur rannsókn á lyfjahvörfum AVT05, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Simponi® og Simponi Aria®

Business
11 January 2023

Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefur hafið rannsókn á lyfjahvörfum AVT05, fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Simponi og Simponi Aria (golimumab). Tilgangur rannsóknarinnar er að bera saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT05 og Simponi, í heilbrigðum einstaklingum.

Við fögnum þessum framgangi í þróun AVT05. Með því að hefja klínískar rannsóknir á fimmtu líftæknilyfjahliðstæðunni, undirstrikum við enn betur það markmið fyrirtækisins að auka lífsgæði með bættu aðgengi að hagkvæmari líftæknilyfjum.

Joseph McClellan

Rannsóknarstjóri Alvotech

Tekjur af sölu Simponi og Simponi Aria námu tæplega 320 milljörðum króna, eða jafnvirði 2,2 milljarða Bandaríkjadala, á tólf mánaða tímabili sem lauk 1. október sl. samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda frumlyfsins, lyfjafyrirtækinu Johnson and Johnson.

Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða, við sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdómum, beinþynningu og krabbameini. Fyrsta lyf fyrirtækisins, hliðstæða við Humira (adalimumab) kom á markað í Evrópu og Kanada sl. vor og hefur lyfið hlotið markaðsleyfi í 35 löndum í Norður-Ameríku, Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Umsókn um markaðsleyfi fyrir lyfið í Bandaríkjunum er nú í ferli.

Um AVT05

AVT05 er líftæknilyfjahliðstæða við Simponi og Simponi Aria (golimumab). Golimumab er einstofna mótefni sem hamlar frumuboðefninu tumor necrosis factor alpha (TNF alpha). Aukið magn TNF alpha er talið geta verið orsakaþáttur í þrálátum bólgusjúkdómum, s.s. liðagigt, sóraliðagigt og hrygggigt. AVT05 er lyf í þróun hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði. Þá liggur niðurstaða eftirlitsaðila ekki fyrir um notkun lyfsins sem líftæknilyfjahliðstæðu.