Skip Navigation

Alvotech mun birta uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022 þann 15. nóvember og heldur kynningarfund 16. nóvember

Business
27 October 2022

Alvotech mun birta uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum þriðjudaginn 15. nóvember n.k.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn í beinu streymi miðvikudaginn 16. nóvember n.k. kl. 13 eftir hádegi að íslenskum tíma. Fundurinn fer fram á ensku.

Þeir sem hyggjast þátt taka í gegnum síma geta skráð sig með því að smella á þennan hlekk og fá að skráningu lokinni sendar nánari upplýsingar, s.s. innhringinúmer og PIN.  

Beint streymi af fundinum verður einnig aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech undir News and Events – Events and Presentations. Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið.