Skip Navigation

Alvotech og Íslandsbanki endurnýja samning um viðskiptavakt með bréf félagsins í Kauphöllinni

Business
01 June 2026

Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Íslandsbanki hf. hafa endurnýjað og gert breytingar á samningi um viðskiptavakt á hlutabréfum Alvotech sem skráð eru á hlutabréfamarkaði Nasdaq Iceland („Kauphöllinni“). Samkvæmt samningnum gefur Íslandsbanki út virk kaup- og sölutilboð fyrir hlutabréf Alvotech í Kauphöllinni fyrir ákveðna lágmarksfjárhæð með föstu bili milli kaup- og söluverðs.

Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf Alvotech í því skyni að skapa markaðsverð, auka seljanleika hlutabréfa félagsins og stuðla að skilvirkri og gagnsærri verðmyndun bréfanna.

Sem viðskiptavaki mun Íslandsbanki daglega setja fram í eigin reikning, í viðskiptakerfi tengdu Kauphöllinni, kaup- og sölutilboð í hlutabréf Alvotech að lágmarki 8 milljónir króna að markaðsvirði áður en viðskipti hefjast í Kauphöllinni. Tilboðin skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Íslandsbanki hefur það sem markmið að setja fram fleiri en eitt tilboð á bæði kaup- og söluhlið Alvotech, þannig að summa tilboðanna sé að lágmarki 8 milljónir króna að markaðsvirði. Íslandsbanka ber þó ekki skylda til þess að auka fjölda tilboða umfram eitt tilboð á hvorri hlið. Íslandsbanka er heimilt að uppfæra tilboð á báðum eða annarri hlið Alvotech eftir þörfum, án þess að öllum tilboðum á viðkomandi hlið hafi verið tekið að fullu.

Hámarksverðbil kaup- og sölutilboða Íslandsbanka sem viðskiptavaka með hlutabréf Alvotech skal vera 2,5% og reiknast sem magnvegið meðaltal allra tilboða viðskiptavakans í pantanabók Alvotech hverju sinni. Daglegt hámarksmagn Íslandsbanka í hlutverki viðskiptavaka með hlutabréf Alvotech skal takmarkast við kaup eða sölu að nettó 16 milljónum króna að markaðsvirði. Daglegt hámarksmagn reiknast sem mismunur á kaup- og sölutilboðum Íslandsbanka sem viðskiptavaka sem gengið hefur verið að. Þegar nettó hámarksmagni dagsins er náð fellur skylda Íslandsbanka niður til að setja fram tilboð á þeirri hlið sem fyllt hefur verið. Þegar gengið hefur verið að tilboði Íslandsbanka á mótlægri hlið og nettó markaðsvirði dagsins er aftur komið undir daglegt hámark virkjast tilboðsskylda aftur á bæði kaup- og söluhlið.

Samningurinn gildir frá og með 29. maí 2026 og er ótímabundinn. Samningsaðilum er heimilt að segja samningnum upp með 7 daga fyrirvara.