Skip Navigation

Alvotech og JAMP tilkynna um samþykki kanadískra heilbrigðisyfirvalda á  SIMLANDI™, hliðstæðu við líftæknilyfið Humira® í háum styrk.

Business
10 January 2022

Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech Holding S.A. („Alvotech“) og JAMP Pharma Group („JAMP Pharma“), kanadískt lyfjafyrirtæki sem er með höfuðstöðvar á Montreal-svæðinu, tilkynntu í dag að kanadísk heilbrigðisyfirvöld hafi veitt JAMP Pharma markaðsleyfi fyrir hliðstæðu líftæknilyfsins Humira® (adalimumab) í háum styrk, sem Alvotech hefur þróað. Lyfið AVT02 (100 mg/ml adalimumab, á forminu 40 mg/0,4 ml og 80 mg/0,8 ml) verður markaðssett af JAMP Pharma undir heitinu  SIMLANDI™ í Kanada á grundvelli sérleyfissamnings Alvotech og JAMP Pharma.

SIMLANDI er fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan til að öðlast samþykki á grundvelli sérleyfissamnings Alvotech og JAMP Pharma. Þrátt fyrir að yfir 80% notkunar lyfsins í Bandaríkjunum sé í hærri styrkleika hefur þessi styrkleiki hingað til ekki verið fáanlegur í Kanada.

Sérhæfing og geta Alvotech til þróunar og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja ásamt öflugri markaðsstöðu JAMP Pharma setja fyrirtækin í sterka stöðu til að bæta hag kanadískra sjúklinga.

Róbert Wessman

Stofnandi og stjórnarformaður Alvotech

Við erum afar ánægð með samþykkið frá kanadískum heilbrigðisyfirvöldum sem undirstrikar nálgun Alvotech að líftæknihliðstæðulyfjum á alþjóðamörkuðum og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við JAMP Pharma.

Mark Levick

Forstjóri Alvotech

Við erum stolt af því að vera fyrsta kanadíska fyrirtækið til að bjóða upp á þennan nýja valkost fyrir sjúklinga sem er töluvert hagkvæmari en Humira®. SIMLANDI mun veita Kanadabúum aðgang að sítratlausu adalimumab með háum styrk, sem er mikið notuð í Evrópu og Bandaríkjunum.

Louis Pilon

Forstjóri JAMP Pharma Group

Við hyggjumst einnig bjóða kanadískum sjúklingum upp á lyfið í skammtinum 80 mg/0,8 ml. Það þýðir að sjúklingar sem þurfa á þeim upphafsskammti að halda þurfa helmingi færri sprautur en annars hefði verið.

Bruno Mäder

Framkvæmdastjóri hjá JAMP Pharma Group

SIMLANDI er sítratlaus hliðstæða líftæknilyfsins Humira® í háum styrk, sem notað er til að meðhöndla ýmsa bólgusjúkdóma. Heildartekjur af lyfinu Humira® árið 2020 jafngiltu um 2.600 milljörðum króna á heimsvísu, sem gerir það að söluhæsta lyfi heims. Lyfið var einnig það söluhæsta í Kanada, en tekjur af sölu þess í Kanada árið 2020 jafngiltu rúmum 90 milljörðum króna samkvæmt IQVIA.

Þann 7. desember 2021 tilkynntu Alvotech og Oaktree Acquisition Corp. II (NYSE: OACB.U, OACB, OACB WS) fyrirætlanir um skráningu Alvotech í bandarísku kauphöllina, NASDAQ, en skráningin mun fara fram með sameiningu Alvotech og sérhæfða yfirtökufélagsins (e. SPAC) Oaktree Acquisition Corp. II. Gert er ráð fyrir að þegar sameining Alvotech og Oaktree hefur að fullu gengið í gegn muni markaðsviðskipti með hlutabréf í sameinuðu fyrirtæki fara fram undir auðkenninu ALVO hjá NASDAQ í Bandaríkjunum.

Í janúar 2020 skrifaði JAMP Pharma Group undir sérleyfissamning við Alvotech um rétt til markaðssetningar í Kanada á fimm líftæknihliðstæðulyfjum sem þróuð eru og framleidd af Alvotech. Samstarfið við JAMP Pharma nær til samþættrar virðiskeðju Alvotech, allt frá frumulínuþróun til framleiðslu. Markaðsstaða og sérþekking JAMP Pharma Group gerir kanadískum sjúklingum kleift að njóta góðs af öruggum og áhrifaríkum líftæknihliðstæðulyfjum ásamt stuðningskerfinu JAMP CareTM, um leið og aukinni hagkvæmni er náð fram innan heilbrigðiskerfisins.

Um JAMP Pharma Group

JAMP Pharma Group er kanadískt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Montreal-svæðinu. Það var stofnað í Bresku Kólumbíu fyrir meira en 30 árum og starfar á öllum sviðum lyfjamarkaðarins. JAMP Pharma Group framleiðir um 300 lyf og yfir 160 lausasölulyf, vítamín og fæðubótarefni innan deilda sinna, Wampole og Laboratoire Suisse. Fyrirtækið er einnig meðal stærstu fyrirtækja landsins þegar horft er til útgefinna lyfseðla á ársgrundvelli samkvæmt IQVIA. JAMP Pharma Group býður einnig upp á víðtækt stuðningskerfi fyrir sjúklinga sem nefnist JAMP CareTM, en það gildir fyrir öll sérlyf og líftæknilyf fyrirtækisins.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknilyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech var stofnað árið 2013 og hefur það að markmiði að verða leiðandi í framleiðslu og dreifingu líftæknihliðstæðulyfja um allan heim. Allir þættir í framleiðslunni eru í höndum fyrirtækisins sjálfs til að tryggja hámarksgæði. Höfuðstöðvar og hátæknisetur Alvotech, sem staðsett er í Vísindagörðum Háskóla Íslands í Vatnsmýri, eru búin fullkomnustu tækjum og búnaði til þróunar og framleiðslu líftæknilyfja. 

Um AVT02

AVT02 er einstofna mótefni og hliðstæða lyfsins Humira® (adalimumab). AVT02 hefur markaðsleyfi í Evrópusambandslöndunum og umsóknir um markaðsleyfi eru í ferli víða um heim. Í Bandaríkjunum er umsókn um markaðsleyfi fullbúin og bíður lokaúttektar á verksmiðjunni, sem mun fara fram á næstu misserum. JAMP Pharma hefur einkarétt á markaðssetningu AVT02 í Kanada undir nafninu  SIMLANDI.