Skip Navigation

Alvotech og starfsmenn styrkja hjálparstarf í Úkraínu

Charity
08 April 2022

Ástandið í Úkraínu lætur engan ósnortinn og í fjölþjóðlegu starfsumhverfi Alvotech ríkir mikil samkennd með samstarfsfólki frá Úkraínu og öllum sem þjást vegna þessara hörmulegu atburða. Starfsmenn tóku sig saman og söfnuðu fjármunum til hjálparstarfsins og fyrirtækið lagði fram sömu fjárhæð á móti. Að ósk úkraínskra starfsmanna fyrirtækisins var ákveðið að söfnunarféð sem nemur samtals rúmum 6 milljónum króna, myndi renna til UN Women. 

Jafnframt ákvað stjórnarformaður fyrirtækisins Róbert Wessman að Alvotech myndi leggja UNICEF til 5 milljónir króna til hjálparstarfs í Úkraínu. Þá greiddi Alvogen 5 milljónir króna til UNICEF auk persónulegs framlags Róberts og fjölskyldu hans.

Starfsfólk Alvotech er fullt þakklætis í garð starfsfólks hjálparsamtaka sem leggur mikið á sig til að til að lina þjáningar og veita nauðsynjar. Það var með djúpri virðingu og þakklæti sem styrkirnir voru afhentir í höfuðstöðvum Alvotech í Vatnsmýri.

UN Women vinnur að ráðgjöf og aðstoð við móttöku fólks á flótta með kvenmiðaða neyðaraðstoð að leiðarljósi. Samtökin vinna að því að þörfum allra kvenna sé mætt og öryggi þeirra tryggt, leggja áherslu á heilbrigðisþjónustu sem nær til sérstakra þarfa kvenna og veita þolendum kynbundins ofbeldis aðstoð og þjónustu.

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi tók við styrknum fyrir hönd samtakanna:

Við hjá UN Women á Íslandi erum innilega þakklát fyrir þetta táknræna framtak starfsmanna Alvotech sem gerir okkur kleift að sinna okkar mikilvægu störfum í Úkraínu og nærliggjandi löndum í þágu allra kvenna.

Stella Samúelsdóttir

Framkvæmdastjóri UN Women

UNICEF beitir sér ötullega bæði í Úkraínu og til aðstoðar fjölskyldum og börnum á flótta með áherslu á að veita nauðsynjar eins og hreint vatn, heilbrigðisþjónustu, skólagögn, menntun, félagslega sálfræðiþjónustu og fjárhagsaðstoð.

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNICEF á Íslandi sagði við móttöku styrksins:

Við erum Alvotech og Alvogen innilega þakklát fyrir þennan mikilvæga stuðning við starf UNICEF vegna Úkraínu. Enn á ný eru Alvotech og Alvogen að reynast UNICEF og bágstöddum börnum dýrmætur bakhjarl með rausnarlegum stuðningi sínum við málstað Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Nú hafa um og yfir 60% allra barna í Úkraínu neyðst til að flýja heimili sín vegna stríðsins og UNICEF er að vinna gríðarlega mikilvæg og umfangsmikil verkefni þar í landi sem og í nágrannaríkjum við að tryggja öryggi, velferð og réttindi þessara barna.

Birna Þórarinsdóttir

Framkvæmdastýra UNICEF