Skip Navigation

Alvotech selur hlutabréf fyrir 19,5 milljarða króna í lokuðu útboði til innlendra fagfjárfesta

Business
23 January 2023

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að félagið hefði gengið frá sölu hlutabréfa fyrir um 19,5 milljarða króna (137 milljónir Bandaríkjadala, miðað við núverandi gengi íslenskrar krónu), með sölu almennra hlutabréfa í félaginu í lokuðu útboði, á genginu 1.650 krónur á hlut (ígildi 11,57 Bandaríkjadala á hlut) til hóps innlendra fagfjárfesta og viðurkenndra gagnaðila í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2014/65. Kaupendur munu fá afhent áður útgefin hlutabréf sem eru í eigu Alvotech í gegnum dótturfélagið Alvotech Manco ehf.

Hlutafjárútboðið hófst 19. janúar sl. og því lauk 22. janúar sl. Gert er ráð fyrir að uppgjör viðskiptanna og afhending bréfa fari fram 10. febrúar nk. Alvotech hyggst nota söluandvirði hlutabréfanna í almennan rekstur og til annarra þarfa félagsins. Ráðgjafar Alvotech í útboðinu voru Landsbankinn og ACRO verðbréf.