Skip Navigation

Alvotech styrkir lausafjárstöðu sína enn frekar með aðgengi að 75 milljóna dala lánsfjármögnun

Business
01 July 2026
  • Hópur fjárfesta undir forystu GoldenTree Asset Management veitir Alvotech viðbótarlán að fjárhæð 75 milljónir dala
  • Lánveiting kemur í kjölfar nýlegrar hlutafjáraukningar að andvirði 165 milljóna dala sem styrkir lausafjárstöðu félagsins
  • Nýtt hlutafé og lán veita Alvotech aðgang að nýrri fjármögnun að fjárhæð um 240 milljónir dala
  • Fjármunirnir verða nýttir til að þróa og markaðssetja nýjar hliðstæður líftæknilyfja

Alvotech (NASDAQ: ALVO; ALVO-SDB; „félagið“), tilkynnti í dag um viðauka við núgildandi lánasamning félagsins við hóp lánveitenda undir forystu GoldenTree Asset Management LP sem veitir félaginu aðgang að nýrri lánsfjármögnun að fjárhæð allt að 75 milljónum dala (um 9,5 milljörðum króna).

Alvotech hefur nýlega aflað um 165 milljóna dala (um 20,9 milljarða króna) með sölu nýrra hluta og mun lánsfjármögnunin styrkja fjárhagsstöðu félagsins enn frekar.  Að viðbættri nýju lánveitingunni hefur félagið tryggt sér aðgang að nýrri fjármögnun að andvirði allt að 240 milljónum dala (um 30,4 milljörðum króna). Félagið hyggst nýta féð til að fjárfesta í áframhaldandi vexti, þróa nýjar hliðstæður og sækja fram á alþjóðlegum mörkuðum.

Fjármögnunin veitir okkur aukinn sveigjanleika til þess að hrinda í framkvæmd vaxtaráformum félagsins. Stuðningurinn sem við fengum frá núverandi hluthöfum og yfir 40 nýjum sérhæfðum fjárfestum í heilbrigðisgeiranum í nýlegu hlutafjárútboði, ásamt þessari viðbótarfjármögnun, endurspeglar vaxandi traust á Alvotech, stefnu okkar og þeim tækifærum sem fram undan eru.

Undanfarna mánuði höfum við náð mikilvægum áföngum í starfseminni. Þar á meðal höfum við lagt inn að nýju mikilvægar umsóknir um markaðsleyfi til Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA), auk þess sem stofnunin samþykkti að taka til umfjöllunar umsókn fyrir nýja hliðstæðu við Entyvio. Við höfum náð mikilvægum áföngum í þróun á nýjum hliðstæðum og sókn á nýja markaði heldur áfram. Þessi árangur sýnir hvernig við erum að byggja upp eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði líftæknilyfjahliðstæðna.

Við erum með um 30 nýjar hliðstæður í þróun og sjáum vaxandi tækifæri til þess að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að hagkvæmum líftæknilyfjum.

Nýja fjármögnunin verður aflvaki fyrir vöxt félagsins og gerir okkur kleift að skapa aukin verðmæti fyrir hluthafa, samstarfsaðila félagsins og sjúklinga.

Róbert Wessman

Stjórnarformaður Alvotech

Lánsfjármögnunin er byggð á núverandi samstarfi Alvotech við GoldenTree sem hefur verið aðallánveitandi félagsins undanfarin ár. Lánsfjárhæðin, 75 milljónir dala, er til viðbótar við lánveitingu frá sömu aðilum að fjárhæð 100 milljónir dala (um 12,7 milljarðar króna) sem tilkynnt var um í desember sl. Lánið ber 12,5% fasta vexti, sem greiðast mánaðarlega og er lokagjalddagi 31. desember 2027.