Skip Navigation

Alvotech tekur þátt í 21. heilbrigðisráðstefnu Morgans Stanleys

Business
11 September 2023

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu fjárfestingabankans Morgans Stanleys sem haldin verður í tuttugasta og fyrsta sinn í New York dagana 11.-13. september nk. 

Ming Li, framkvæmdastjóri stefnumótunar, flytur kynningu og situr fyrir svörum á ráðstefnunni 13. september nk. kl. 16:30 að íslenskum tíma. Til þess að hlýða á beina streymið þarf að skrá þátttöku með því að smella á hlekk sem er birtur á á fjárfestasíðu Alvotech undir liðnum News and Events – Events and Presentations. Að ráðstefnunni lokinni verður upptakan áfram aðgengileg, í 90 daga hið minnsta.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

TENGILIÐUR

Forstöðumaður fjárfestatengsla- og samskiptasviðs
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir@alvotech.com