Skip Navigation

Alvotech tekur þátt í þremur fjárfestaráðstefnum í Bandaríkjunum í júní

Business
02 June 2026

Alvotech tekur þátt í þremur fjárfestaráðstefnum í Bandaríkjunum fyrri hluta júnímánaðar. Þar munu Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech og Balaji V. Prasad, framkvæmdastjóri stefnumótunar, kynna félagið fyrir fjárfestum og sitja fyrir svörum.

Dagskrá:   

  • Alþjóðleg heilbrigðisráðstefna Jefferies í New York: Fimmtudaginn 4. júní nk. kl. 13:20
  • Alþjóðleg heilbrigðisráðstefna Goldman Sachs í Miami: Mánudaginn 8. júní nk. kl. 12:40
  • Vefráðstefna UBS um samheitalyf og líftæknilyfjahliðstæður: Miðvikudaginn 10. júní nk. kl. 14:30

Hægt verður að hlýða á beint streymi af viðburðunum og að þeim loknum verður upptaka aðgengileg á vef Alvotech í 90 daga. Nánari upplýsingar eru á síðunni: News and Events – Events and Presentations.