Skip Navigation

Alvotech tilkynnir um 21 milljóna dala hlutafjáraukningu vegna aukins áhuga fjárfesta á þátttöku

Business
18 January 2022

Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech Holdings S.A. („Alvotech“), og sérhæfða yfirtökufélagið (e. SPAC) Oaktree Acquisition Corp. II („Oaktree II“) (NYSE: OACB) sem er hlutdeildarfélag Oaktree Capital Management, L.P., tilkynntu í dag að auk þess sem áður var tilkynnt þann 7. desember hafi fjárfestar óskað efir að skrá sig fyrir 21 milljón Bandaríkjadala til viðbótar í beinni hlutafjáraukningu („PIPE-fjármögnun“) Oaktree II í lokuðu útboði í tengslum við fyrirhugaða sameiningu fyrirtækjanna. Því hefur verið ákveðið að stækka hlutafjáraukninguna.

Hlutafjáraukningin, sem nemur nú samtals um 175 milljónum dala og samanstendur af almennum hlutabréfum að andvirði 10 dala á hlut, er drifin af umframeftirspurn íslenskra fjárfesta fyrir milligöngu Arctica Finance, Arion banka og Landsbankans. Þessi 21 milljón dala aukning kemur til viðbótar við fjárfestingu annarra leiðandi fjárfesta, en á meðal þeirra eru Suvretta Capital, Athos (fjárfestingafélag Strüngmann-fjölskyldunnar), CVC Capital Partners, Temasek Holdings, YAS Holdings, Farallon Capital Management og Sculptor Capital Management.

Gert er ráð fyrir að sameining fyrirtækjanna skili Alvotech 475 milljónum dala (ef gert er ráð fyrir engum innlausnum). Þetta felur í sér 250 milljóna dala innspýtingu reiðufjár sem kemur úr sjóðum Oaktree II (ef gert er ráð fyrir engum innlausnum), yfir 175 milljónir dala með beinni hlutafjáraukningu (PIPE-fjármögnuninni); og 50 milljóna dala frá núverandi hluthöfum sem þeir fjármögnuðu fyrir árslok 2021. Áætlað heildarvirði sameinaðs fyrirtækis er áætlað um 2,25 milljarðar dala.

„Þessi hlutafjáraukning er til marks um þann mikla áhuga sem langtímafjárfestar hafa sýnt okkur nú þegar við vinnum áfram að sameiningunni við Oaktree II,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður og stofnandi Alvotech. „Það er ánægjulegt að sjá áframhald þessarar jákvæðu þróunar nú í ársbyrjun 2022 og við hlökkum til að vinna áfram að því markmiði okkar að færa sjúklingum um allan heim líftæknihliðstæðulyf í hæsta gæðaflokki og á góðu verði.“ 

„Alvotech er vel í stakk búið til áframhaldandi fjárfestingar í framtíðarvöruframboði á sviði líftæknihliðstæðulyfja,“ segir Mark Levick, framkvæmdastjóri Alvotech. „Við erum afar ánægð með framgang hlutafjáraukningarinnar, sem endurspeglar tryggð fjárfesta við markmið okkar um bætt aðgengi líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga.“

Hlutafjáraukningin er gerð samhliða samrunaferli því sem Alvotech og Oaktree II eru í og háð samþykki hluthafa Oaktree II um samrunann og öðrum skilyrðum um viðskiptin. Þegar samruninn er að fullu genginn í gegn er áætlað að viðskipti með hlutabréf sameinaðs fyrirtækis fari fram á NASDAQ í Bandaríkjunum undir auðkenninu „ALVO“. Gert er ráð fyrir að samruninn gangi í gegn  á fyrri helmingi ársins 2022. 

 

Um Alvotech

Alvotech er líftæknilyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech var stofnað árið 2013 og hefur það að markmiði að verða leiðandi í framleiðslu og dreifingu líftæknihliðstæðulyfja um allan heim. Allir þættir í framleiðslunni eru í höndum fyrirtækisins sjálfs til að tryggja hámarksgæði. Höfuðstöðvar og hátæknisetur Alvotech, sem staðsett er í Vísindagörðum Háskóla Íslands í Vatnsmýri, eru búin fullkomnustu tækjum og búnaði til þróunar og framleiðslu líftæknilyfja. 

Fyrirvarar Alvotech. 

Frekari upplýsingar veitir

Alvotech, samskiptasvið
Elísabet Hjaltadóttir
Netfang: elisabet.hjaltadottir@alvotech.com