- Alvotech verður hluti af NBI vísitölunni við opnun markaða í Bandaríkjunum 23. desember 2024
Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að hlutabréf félagsins hafi verið tekin inn í Líftæknivísitölu Nasdaq (NBI) við árlega endurskoðun hennar. Breytingin tekur gildi við opnun markaða í Bandaríkjunum mánudaginn 23. desember 2024.
Til þess að vera tekin inn í Líftæknivísitölu Nasdaq þurfa félög að vera skráð á markað í Bandaríkjunum, flokkuð þar sem líftæknifyrirtæki eða lyfjafyrirtæki og uppfylla ýmis önnur skilyrði, svo sem um lágmarksmarkaðsvirði og daglega meðalveltu hlutabréfa. Vísitalan er reiknuð út frá vegnu markaðsvirði. NBI vísitalan er endurskoðuð einu sinni á ári, í desember.