Skip Navigation

Alvotech undirbýr framleiðslu líftæknilyfja - Nýtt vöruhús að Lambhagavegi tekið í notkun

Business
01 November 2021

Líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech stefnir á að setja sína fyrstu vöru, AVT02, sem er hliðstæða líftæknilyfsins Humira®, á markað á næsta ári. Til að styðja við framleiðsluna, sem mun fara fram í hátæknisetri fyrirtækisins í Vatnsmýri, er fyrirtækið að taka í notkun nýtt húsnæði að Lambhagavegi 7, í Reykjavík. 

Alvotech hefur gert langtíma leigusamning um afnot húsnæðisins, sem er 4.100 fermetrar og á þremur hæðum. Byggingin mun hýsa lager og rannsóknarstofur fyrir hráefni til lyfjagerðar, ásamt skrifstofum, en gert er ráð fyrir að um 40 manns starfi í húsinu að jafnaði.

Nýlega náðust mikivægir áfangar í átt að skráningu lyfsins, en sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (CHMP), hefur mælt með samþykki stofnunarinnar á AVT02 fyrir markaði Evrópusambandsins. Þá hefur Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) nýlega staðfest að umsókn um markaðsleyfi fyrirtækisins á AVT02 sé fullbúin og stefnir eftirlitið á að gera lokaúttekt á verksmiðjunni á næstu misserum. 

„Afhending vöruhússins að Lambhagavegi er mikilvægur áfangi núna þegar að framleiðsla Alvotech á hliðstæðulyfi Humira að hefjast“, sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður við þetta tækifæri. „Alvotech hefur  gert sölu- og dreifingarsamninga fyrir alla helstu markaði heims og er skránings lyfsins á áætlun. Humira er söluhæsta lyf í heimi með yfir 20 milljarða dollara í ársveltu og mun Alvotech bjóða lyfið á hagstæðari verðum en frumlyfið og þar með bæta aðgengi fólks að þessu skilvirka lyfi.“

Fjölmargir verktakar komu að standsetningu húsnæðisins á Lambhaga, þar á meðal Reirverk, sem sá um byggingastjórnun, KRark sem sá um arkítektúr byggingarinnar og Arkþing, með arkítektúr innra skipulags.