Skip Navigation

Samruni Alvotech og Oaktree samþykktur og stefnt að skráningu á NASDAQ

Business
07 June 2022

· Samruni við Alvotech var samþykktur á hlutahafafundi Oaktree Acquisition Corp. II í dag og  stefnt er að því að hann taki gildi 15. júní.

· Í kjölfarið geta viðskipti með hlutabréf Alvotech undir heitinu „ALVO“ hafist á Nasdaq markaðnum í New York 16. júní.

· Einnig hefur Nasdaq OMX staðfest að viðskipti með bréf félagsins geti hafist á First North Growth markaðnum á Íslandi þann 23. júní, eftir formlega staðfestingu á skráningarlýsingu félagsins.

Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II („OACB“) samþykkti í dag samruna við Alvotech S.A. og Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Hlutabréf í Alvotech verða þá tekin til viðskipta á NASDAQ markaðnum í New York 16. júní. Einnig er gert ráð fyrir að viðskipti með hlutabréf Alvotech geti hafist  á Nasdaq First North Growth markaðnum í Reykjavík 23. júní. Á báðum mörkuðum verða hlutabréfin auðkennd „ALVO“.

Þetta eru afar spennandi skref fyrir Alvotech teymið, samstarfsaðila okkar og alla þá sem vilja stuðla að auknu framboði líftæknilyfja sem uppfylla ítrustu kröfur og lækka kostnað heilbrigðiskerfisins. Frá stofnun fyrirtækisins fyrir áratug höfum við helgað krafta okkar því að bæta aðgengi að meðferðarúrræðum sem geta gjörbreytt lífsgæðum sjúklinga.

Róbert Wessman

Stofnandi og stjórnarformaður Alvotech

Alvotech er að stíga inn á hlutabréfamarkað einmitt þegar heilbrigðisþjónusta um allan heim stendur á miklum tímamótum, þar sem kröfur um aukið aðgengi og lægri kostnað verða sífellt háværari. Við erum einstaklega stolt af því að fá að starfa með félagi sem getur í senn bætt líf sjúklinga og aukið sjálfbærni heilbrigðiskerfisins. Við hlökkum til að starfa áfram með Alvotech teyminu og stuðla þannig að því að fyrirtækið nái því markmiði að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja á öllum helstu mörkuðum heimsins.

Zaid Pardesi

Framkvæmdastjóri hjá Oaktree, fjármálastjóri og stjórnandi samrunafélagsins Oaktree Acquisition Corp II

Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki, stofnað af Róberti Wessman, sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins, til þess að tryggja hámarksgæði. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE and TASE: TEVA; markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (TSE: 4554; Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (NSE: CIPLA; Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (SWX:DKSH; Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (NASDAQ og TASE: KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (1795:TT; Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).