Skip Navigation

Alvotech tilkynnir breytingu í framkvæmdastjórn

Business
30 April 2026

Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, hefði óskað eftir að láta af störfum eftir sex ára feril hjá félaginu.

Ég vil þakka Tanyu innilega fyrir framlag hennar til Alvotech undanfarin sex ár, þar sem hún hefur leitt skráningu félagsins á nokkrum mörkuðum og átt mikilvægan þátt í að laða að fjölda erlenda sérfræðinga til starfa á Íslandi. Í sameiningu höfum við sett saman frábært leiðtogateymi sem er tilbúið til að leiða félagið á næstu árum.

Róbert Wessman

Stjórnarformaður Alvotech

Þessi sex ár hafa verið ævintýri og ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í að byggja upp þetta framúrskarandi fyrirtæki, meðal annars með skráningu á markað í þremur löndum. Nú er rétti tíminn til að breyta til. Það er mér sönn ánægja að sjá Lisu Graver taka við stöðu forstjóra og bætast þannig í hóp þeirra frábæru samstarfsfélaga í yfirstjórn Alvotech sem hafa flust til Íslands. Þótt ég hafi ákveðið að láta af störfum, er ég ekki farin strax, hlakka til að taka þátt í að afhenda öðrum keflið og styðja félagið á næstu mánuðum. Samstarf mitt við Róbert og tenging við Alvotech heldur svo áfram, þar sem ég mun taka að mér setu í stjórnum fyrir eignarhaldsfélög hans, Aztiq og Flóka.

Tanya Zharov