Skip Navigation

Alvotech birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026

Business
06 May 2026

Helstu niðurstöður

Ítarlegri tilkynning á ensku sem veitir nánari upplýsingar um fjárhag og rekstur á fyrsta ársfjórðungi 2026 er birt á slóðinni: https://investors.alvotech.com/earnings-calendar undir liðnum „Q1 2026 Earnings Call“.

Helstu niðurstöður á fyrsta fjórðungi ársins 2026

  • Heildartekjur voru 105,9 milljónir dollara, samanborið við 132,8 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi liðins árs
  • Aðlöguð EBITDA1 nam 24,4 milljónum dollara og framlegð af heildartekjum var 57%

Áfangar eftir lok fyrsta ársfjórðungs

  • Alvotech lagði inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir AVT16 og AVT80, fyrirhugaðar hliðstæður við Entyvio, hjá Lyfjastofnun Evrópu (EMA)
  • Klínísk rannsókn hófst á virkni og öryggi AVT29, fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk (Eylea HD), en stefnt er að leggja inn umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum á árinu 2028
  • Alvotech gerði samstarfssamning við FUJIFILM Biotechnologies sem tryggir félaginu aðgang að framleiðslugetu í Bandaríkjunum sem verður hrein viðbót við aðstöðuna á Íslandi

Tölurnar sýna tekjur, hagnað eða tap tímabilsins að teknu tilliti til einskiptis- og óreglulegra liða. Nánari upplýsingar er að finna í ítarlegri útgáfu tilkynningarinnar á ensku á vefsíðu Alvotech.

Á liðnum ársfjórðungi náðum við ýmsum stefnumarkandi áföngum, undirbjuggum að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum, tókum mikilvæg skref í markaðssetningu og þróun nýrra hliðstæðna og unnum að markvissum endurbótum á framleiðsluaðstöðunni.

Undanfarna mánuði höfum við endurbætt fjölmörg gæða- og framleiðslukerfi félagsins. Við tókum meðvitaða ákvörðun um að eyða meiri tíma í þessar aðgerðir til að draga enn frekar úr þeirri áhættu að úttektir á framleiðsluaðstöðunni hafi áhrif á reksturinn. Við vildum einnig tryggja að þegar við sendum inn umsóknirnar að nýju til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), svari þær fyllilega öllum kröfum eftirlitsins. Endurbæturnar stuðla jafnframt að langtímavexti og verðmætasköpun félagsins.       

Heildartekjur og EBITDA-framlegð á fyrsta ársfjórðungi endurspegla að hægja þurfti á framleiðslu á meðan þessar úrbætur á framleiðsluaðstöðunni fóru fram. Við búumst við að tekjur af vörusölu aukist þegar framleiðslan kemst aftur í eðlilegt horf.

Á viðskiptahliðinni verðum við vör við mikla undirliggjandi eftirspurn eftir öllum hliðstæðum okkar sem eru á markaði, þar á meðal fer eftirspurn enn vaxandi eftir hliðstæðunni við Humira í Bandaríkjunum.

Við náðum einnig mikilvægum áföngum í lyfjaþróun, þar á meðal lögðum við inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio og tókum inn fyrstu sjúklingana í lykilrannsókn á klínískri virkni og öryggi fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk.   

Í dag tilkynntum við um samstarfssamning við FUJIFILM Biotechnologies um framleiðslu á nokkrum þeirra hliðstæðna sem við erum með á markaði og í þróun. Þetta treystir enn frekar framleiðslukeðjuna og dreifir áhættu, sem mun auðvelda næstu skref í markaðssetningu.  

Við leggjum ríka áherslu á að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi til FDA á þessum ársfjórðungi. Þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í síðan á síðasta ári gera þessar umsóknir traustari en bæta einnig alla aðstöðu okkar fyrir framleiðslu og þróun nýrra hliðstæðna. Með endurbótunum verðum við því enn betur búin undir næsta vaxtarskeið í sögu félagsins.  

Lisa Graver

Forstjóri

Afkomuspá fyrir árið 2026

Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 verði á bilinu 650-700 milljónir dollara og aðlöguð EBITDA á bilinu 180-220 milljónir dollara. Lægri mörk afkomuspárinnar gera ráð fyrir engum tekjum af nýjum lyfjum í Bandaríkjunum á árinu 2026.

Boð á kynningu á uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung 2026:

Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið í beinu streymi sem hefst kl. 12 fimmtudaginn 7. maí nk.

Til þess að hlusta á beint streymi af fundinum:
https://edge.media-server.com/mmc/p/ppckxq33

Til þess að hlusta eða leggja fram spurningu úr síma (hverjum þátttakanda er úthlutað PIN):
https://register-conf.media-server.com/register/BIdfe56c21c8d448efb09f3c30405bb00d

Kynningarglærur fyrir fundinn er að finna undir liðnum „Q1 2026 Earnings Call“ á slóðinni:

https://investors.alvotech.com/earnings-calendar